Index: 0

Dagskrá og tillögur fyrir aðalfund Hampiðjunnar er haldinn verður 25. mars 2022 kl. 16:00

11.03.2022

DAGSKRÁ

  1. Skýrsla stjórnar félagsins um starfsemina árið 2021.
  2. Staðfesting ársreiknings og ráðstöfun hagnaðar ársins 2021.
  3. Ákvörðun um þóknun til stjórnarmanna.
  4. Kosning stjórnar félagsins.
  5. Kosning endurskoðunarfélags.
  6. Önnur mál.

Atkvæðaseðlar og önnur fundargögn verða afhent á fundarstað.

TILLÖGUR

Um greiðslu arðs:

Stjórn félagsins leggur til að á árinu 2022 vegna rekstrarársins 2021 verði greiddar 1,8 kr. á hlut í arð til hluthafa, eða 900 milljónir ISK. Arðurinn verði greiddur í viku 23. Síðasti viðskiptadagur þar sem arður fylgir bréfunum er 25. mars 2022, þ.e. viðskipti sem fara fram á þeim degi koma fram í hlutaskrá félagsins á arðsréttindadeginum 29. mars. Arðleysisdagurinn er 28. mars.

Um þóknun til stjórnarmanna:
Þóknun til stjórnarmanna verði 260.000 kr. á mánuði, formaður fái þrefaldan hlut.

Um endurskoðunarfélag:
PricewaterhouseCoopers ehf. verði kjörið til næsta árs.



Aðalfundur Hampiðjunnar mars 2022.pdf

Please fill in the below details in order to view the requested content.