Aðalfundur Hampiðjunnar hf.

2. apríl 2009

Í fundarsal Flatahrauni 3 í Hafnarfirði, kl 16:00

DAGSKRÁ

1.    Skýrsla stjórnar félagsins um starfsemina árið 2008.
2.    Staðfesting ársreiknings og ráðstöfun hagnaðar ársins 2008.
3.    Ákvörðun um þóknun til stjórnarmanna.
4.    Kosning stjórnar félagsins.
5.    Kosning endurskoðunarfélags.
6.    Tillaga um að stjórn fái heimild til kaupa á eigin hlutum.
7.    Önnur mál. 

Atkvæðaseðlar og önnur fundargögn verða afhent á fundarstað.  

Tillaga stjórnar um ráðstöfun hagnaðar.
Lagt er til að hagnaður félagsins á rekstrarárinu 2008 verði fluttur til næsta árs. 

Tillaga stjórnar um þóknun stjórnarmanna.
Þóknun til stjórnarmanna fyrir liðið ár verði kr. 600.000, formaður taki þrefaldan hlut.

Tillaga stjórnar um endurskoðunarfélag.
PricewaterhouseCoopers hf. verði kjörið til næsta árs. 

Tillaga stjórnar um kaup á eigin hlutum.
Stjórn félagsins verði heimit að kaupa eigin hluti í félaginu.  Heimild þessi standi í 18 mánuði og takmarkist við að samanlögð kaup fari ekki yfir 10% af heildarhlutafé félagsins á hverjum tíma.  Kaupverð hluta skal vera hæst  15% yfir síðasta þekktu söluverði á First North markaðinum áður en kaup eru gerð.



-------------------------------------------------------------------

Fjárhagsdagatal Hampiðjunnar fyrir árið 2009.
Árshlutareikningur fyrir fyrstu 6 mánuðina 2009 verður birtur í viku 35.
Ársreikningur fyrir árið 2009 verður birtur í viku 13 árið 2010.