DAGSKRÁ
- Setning fundar.
- Skýrsla stjórnar félagsins um starfsemi þess árið 2007.
- Endurskoðaður ársreikningur lagður fram til staðfestingar.
- Tillaga stjórnar um greiðslu arðs.
- Ákvörðun um þóknun til stjórnarmanna.
- Kosning stjórnar félagsins.
- Kosning endurskoðunarfélags.
- Tillaga um að stjórn fái heimild til kaupa á eigin hlutum.
- Önnur mál.
Atkvæðaseðlar og önnur fundargögn verða afhent á fundarstað.
Tillögur fyrir aðalfund Hampiðjunnar hf. 14. mars 2008
Tillaga stjórnar um greiðslu arðs
Aðalfundur Hampiðjunnar hf. samþykkir að greiddur verði 10% arður, alls að fjárhæð kr. 50 milljónir, vegna rekstrarársins 2007. Arðurinn verði greiddur út í viku 18. Síðasti viðskiptadagur þar sem arður fylgir bréfunum er 14. mars., þ.e. viðskipti sem fara fram á þeim degi koma fram í hlutaskrá félagsins á arðsréttindadeginum 19. mars. Arðleysisdagurinn er 17. mars.
Tillaga um þóknun stjórnarmanna
Aðalfundur Hampiðjunnar hf. samþykkir að þóknun til stjórnarmanna fyrir liðið ár verði kr. 600.000, formaður taki þrefaldan hlut.
Tillaga stjórnar um endurskoðanda
Aðalfundur Hampiðjunnar hf. kýs PricewaterhouseCoopers hf. endurskoðunarfélag félagsins.
Tillaga stjórnar um kaup á eigin hlutum
Aðalfundur Hampiðjunnar hf. veitir stjórn félagsins heimild til þess að kaupa eigin hluti í félaginu. Heimild þessi standi í 18 mánuði og takmarkist við að samanlögð kaup fari ekki yfir 10% af heildarhlutafé félagsins á hverjum tíma. Kaupverð hluta skal vera hæst 15% yfir síðasta þekktu söluverði á First North markaðinum áður en kaup eru gerð.